15455774537_0a30ddafcd_k

 

Greiðslufyrirkomulag mótsgjalda verður með sama sniði og áður. 

Leiðtogar/prestar sjá um að innheimta þátttökugjöld (þar með talið staðfestingargjald) af þátttakendum og greiða svo ÆSKÞ með rafrænni kröfu eða millifærslu.

Þátttökugjald fyrir aðildarfélög ÆSKÞ er 22.000 kr á hvern þátttakanda/leiðtoga/prest en 28.000 kr fyrir aðra. Aðildargjald ÆSKÞ er 30.000 kr. fyrir árið og sjálfsagt er að gerast aðilli hvenær sem, ef einhverjar kirkjur eru ekki aðillar en vilja verða það vinsamlegast hafið samband við Steinunni Önnu, gjaldkera ÆSKÞ.

Af þátttökugjaldi er 8.000 kr óafturakræft staðfestingargjald sem skal greiðast við skráningu. 

Allar greiðslur skulu fara í gegnum innheimtukerfi bankanna. Kröfur verða stofnaðar á þá kennitölu sem gefin er upp við skráningu hópsins. Þær verða þá sýnilegar í viðkomandi netbanka. Einnig er hægt að greiða þær í öðrum netbönkum eða bankaútibúum með því að notast við kröfunúmer sem sent verður út í tölvupósti. 

 

Óafturkræft staðfestingargjald, 8.000 kr á hvern þátttakanda, greiðist við skráningu. Skráningu á Landsmót 2023 lýkur föstudaginn 1. mars. Strax og skráningu er lokið verður stofnuð rafræn krafa fyrir staðfestingargjöldum hópsins og skal greiða kröfuna innan 3 daga. 

Skráning telst ekki gild fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt. Leiðtogar/prestar ættu ekki að skrá þátttakendur á mótið án þess að vera áður búnir að innheimta 8.000 kr. staðfestingargjald þar sem gjaldið er óafturkræft. 

Þátttökugjöld að frádregnum staðfestingargjöldum auk þátttökugjalda leiðtoga/presta greiðast svo með annarri kröfu sem verður stofnuð strax að loknu Landsmóti. Ekki er tekið við greiðslu mótsgjalda í reiðufé á Landsmóti. 

Allar fyrirspurnir vegna skráningar berist á netfangið gjaldkeri@aeskth.is.