Skip to content
ReglurGuðmundur Karl Einarsson2017-09-25T13:57:44+00:00
Reglur Landsmóts ÆSKÞ
- Munum gullnu regluna og förum eftir henni
- Umgengni lýsir innri manni. Göngum um allt húsnæði með virðingu. Valdi þátttakandi skemmdum á húsnæði og/eða eigum á mótssvæði, ÆSKÞ eða annarra er honum gert að bæta tjónið.
- Á auglýstum kyrrðartíma eiga allir að vera komnir á sína svefnstaði og forðast háreysti.
- Skyldumæting er á alla auglýsta dagskrá mótsins nema annað sé sérstaklega teki fram.
- Þátttakendum ber að hlýða leiðtogum sinnar kirkju, starfsfólki og landsmótsstjóra.
- Orkudrykkir eru bannaðir á landsmóti.
- Vegna algengis bráðaofnæmis fyrir hnetum eru hnetur og matvörur sem innihalda hnetur (s.s. Snickers) ekki leyfðar á mótinu.
- ÆSKÞ ber ekki ábyrgð á verðmætum (s.s. símum, spjaldtölvum, fartölvum, farangri eða öðru) sem þátttakendur eða leiðtogar taka með sér á mótið.
- Meðferð og neysla áfengis og annarra vímuefna er óheimil á landsmóti. Haft verður skilyrðislaust samband við forráðamenn þeirra sem brjóta þessa reglu og viðkomandi sendur heim á þeirra kostnað.
- Tóbaksnotkun er ekki leyfð á mótinu. Við fyrsta brot verður haft samband við forráðamenn. Verði notkunar aftur vart verður viðkomandi sendur heim á þeirra kostnað. Sama gildir um rafrettur.
Page load link