HÆFILEIKAKEPPNIN er af mörgum talin einn af hápunktum landsmóts enda hefur keppnin vaxið mikið sı́ðastliðin ár. Í ár lı́kt og sı́ðustu ár verður forkeppni. Þvı́ þurfa öll atriðin sem keppa eiga ı́ hæfileikakeppninni að skila sér til dómnefndar eigi sı́ðar en 16. mars.  

Aðeins er leyfilegt að senda eitt atriði frá hverju æskulýðsfélagi ı́ keppnina. 

Hámarkslengd á atriði sem tekur þátt ı́ keppninni er 3 mı́nútur. Það má vera styttra en ekki er leyfilegt að fara yfir þennan tı́ma. Fari atriði yfir leyfilegan hámarkstı́ma verða stig dregin af atriðinu. 

Sı́ðastliðin ár höfum við óskað eftir þvı́ að æskulýðsfélögin sendi vı́deó af atriðinu sı́nu um leið og það er skráð á mótið. Við nýtum okkur þessar upptökur fyrir dómnefndina til að kjósa fimm atriði sem komast áfram ı́ lokakeppnina á landsmóti. 

Úrslit hæfileikakeppinnar fara fram á laugardeginum. 

STIGAGJÖF 

Í forkeppninni verður stigagjöf með þvı́ móti að dómnefnd mun gefa hverju atriði stig og þau stiga hæstu keppa til úrslita. Í lokakeppninni verður sama fyrir komulag og hefur verið þar sem öll æskulýðsfélögin fá ı́ hendur einkunnablað og gefa atriðunum atkvæði sem gilda 50% á móti atkvæðum dómnefndar (ekki ósvipað og ı́ Eurovision). Atkvæðin eru talin saman ı́ stigum lı́kt og ı́ Eurovision. Ekki má gefa sjálfum sér stig. Þegar stig hafa verið gedin er atkvæðablaðið sett ı́ umslag og skilað inn. Dómnefndin mun sömuleiðis gefa atriðunum 2, 4, 6, 8, 10 og 12 stig og gilda stig dómnefndar 50% á móti stigum æskulýðsfélaganna. 

EITT ATRIÐI FRÁ HVERJU FÉLAGI 

Aðeins er leydilegt að senda eitt atriði frá hverju æskulýðsfélagi til keppni. Engar undantekningar verða gerðar á þessari reglu og þvı́ er mikilvægt að leiðtogar upplýsi sı́n æskulýðsfélög um þetta. 

TÍMATAKMÖRK 

Hámarkslengd á atriði sem tekur þátt ı́ keppninni er 3 mı́nútur. Það má vera styttra en ekki er leyfilegt að fara yfir þennan tı́ma. Fari atriði yfir leyfilegan hámarkstı́ma verða stig dregin af atriðinu. 

ÆFINGAR 

Vegna breytingar á fyrirkomulagi keppninnar getum við nú boðið æskulýðsfélögunum sem komast ı́ lokakeppnina að æfa atriðið á sviðinu áður en lokakeppnin fer fram. 

UPPTAKA AF ATRIÐUM 

Gerð er krafa um að þau æskulýðsfélög sem taka þátt ı́ hædileikakeppninni sendi okkur upptöku af atriðinu um leið og atriðið er skráð til keppni. Upptakan verður notuð til að velja þau 3-5 atriði sem komast áfram. Þó er ekki gerð krafa um að upptakan sé lokaú́tgáfa af atriðinu – heldur einungis að hún gefi góða og rétta mynd af þvı́ hvernig atriðið mun lı́ta út. 

Engar kröfur eru gerðar um vinnslu, mynd eða hljóðgæði, einungis einfalda upptöku afatriðinu. Upptakan má vera á sı́ma, myndavél, upptökuvél, iPod eða hverju þvı́ formi sem tekur upp myndskeið. Myndbandið er sı́ðan sett inn á YouTube (mikilvægt að skrá það sem UNLISTED* svo að einungis landsmótsnefnd sjái). Sá sem skráir atriðið til keppni setur með slóðina á myndbandið svo að landsmótsnefnd geti nálgast það. 

Þegar myndband er skráð sem UNLISTED inni á YouTube þá getur einungis sá séð það sem hefur beina slóð á myndbandið. 

Síðasti skráningardagur í hæfileikakeppnina er sunnudagurinn 16. mars 2025. 

Upptökur af atriðum skulu sendast á gjaldkeri@aeskth.is

15618117536_eac492f518_k