Landsmót ÆSKÞ á Selfossi 20. – 22. október 2017
>> Smelltu hér til að sjá helstu dagsetningar og leiðbeiningar
Skráning
Skráning á Landsmót fer fram á vefnum á skraning.aeskth.is. Skráningu lýkur 29. september 2017.
Mótsgjald
Mótsgjald er 21.900 kr á mann fyrir aðildarfélög ÆSKÞ en 24.900 kr fyrir aðra. Við skráningu þarf að greiða 9.000 kr óafturkræft staðfestingargjald og svo afganginn af mótsgjaldinu fyrir mótið.
Nýjustu fréttir
MánudagsMolinn
Nú eru aðeins 11 dagar í Landsmót og erum við heldur betur farin að hlakka til Við minnum á Hæfileikakeppni ÆSKÞ og Hönnunarkeppni ÆSKÞ - ÆskuList Skráningarfrestur í Hæfileikapennina rennur út 16. mars en [...]
MánudagsMolinn 3. mars
Nú er skráningu á Landsmót lokið og heldur betur mikil spenna komin í mannskapinn. Á föstudagskvöldinu hefur verið hefð fyrir því að bjóða uppá sundlaugarpartý Í ár verður það partý með aðeins breyttu sniði [...]
MánudagsMolinn 24. febrúar
Við verðum heldur betur í góðum félagsskap á Landsmóti 2025 Sérstakir gestir munu kíkja til okkar en það eru: Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands Frú Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands Við minnum á að [...]
Landsmótsstjóri
Ása Laufey Sæmundsdóttir
Netfang: landsmot@aeskth.is
Sími: 869 9659
Framkvæmdastjóri ÆSKÞ
Jónína Sif Eyþórsdóttir
Netfang: joninasif@aeskth.is
Sími: 661-8485
Hæfileikakeppni
Eins og áður verður hæfileikakeppnin á sínum stað á mótinu. Við erum þó alltaf að leita leiða til þess að gera gott betra og ætlum því að prófa nýja nálgun í ár. Æskulýðsfélög sem ætla að taka þátt í keppninni þurfa að senda inn myndband fyrir 2. október. Sérstök dómnefnd mun svo fara yfir öll innsend myndbönd og velja fimm bestu atriðin sem munu svo keppa á mótinu sjálfu. Þar verður stigagjöfin eins og áður, þ.e. dómnefnd sem hefur 50% vægi og atkvæði allra æskulýðsfélaganna með 50% vægi.
Eins og áður gildir að hvert atriði má vera í mesta lagi 3 mínútur að lengd.
Mótsgjöld
Það er dýrt að halda eitt stykki Landsmót og að mörgu að hyggja. Markmið ÆSKÞ hefur verið að reyna að halda mótsgjöldum eins lágum og mögulega er hægt til þess að sem flestir hafi möguleika á að koma. Fram á síðasta dag vinna framkvæmdastjóri og landsmótsstjóri að því að afla styrkja svo mótið geti gengið upp.
Mótsgjald er 21.900 kr/mann fyrir félög innan ÆSKÞ en 24.900 kr/mann fyrir félög utan ÆSKÞ. Greitt er mótsgjald fyrir bæði þátttakendur og leiðtoga. Af mótsgjaldinu er staðfestingargjald 9.000 kr/mann og er það óafturkræft. Það þýðir að jafnvel þó viðkomandi mæti ekki á mótið fær hann staðfestingargjaldið ekki endurgreitt.
Þátttakendur greiða venjulega sínum leiðtoga staðfestingargjaldið við skráningu á mótið. ÆSKÞ sendir svo kirkjunni reikning fyrir mótsgjaldinu. Rétt fyrir mótið greiða þátttakendur svo leiðtoganum sínum afganginn af mótsgjaldinu. Strax að móti loknu sendir ÆSKÞ svo kirkjunni reikning fyrir mótsgjöldum þeirra sem mættu auk mótsgjalda leiðtoga. Mikilvægt er að greiða reikningna strax því ÆSKÞ þarf að standa straum af reikningum við mótið s.s. rútum, gistingu, mat, tæknimálum o.fl.