Við leitum að öflugu fólki til að vera með í landsmótsnefnd. Hún á veg og vanda að allri framkvæmd og skipulagningu Landsmóts. Nefndin fundar reglulega með framkvæmdastjóra og landsmótsstjóra og saman vinnur hópurinn að því að búa til ógleymanlegan viðburð.
Öllu jafna skipa 10 manns nefndina, meðal verkefnana eru:
Landsmótsstjóri
Vaktstjóri
Fulltrúi heimabyggðar
Fjölmiðlafulltrúi
Sviðsstjóri
Veitingastjóri
Viðburðarstjóri
Tæknistjóri
L0 – sjálfboðaliðar
Hlaupari/Reddari
Þeir sem hafa áhuga á að vera með endilega sendið póst á aeskth@aeskth.is