Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri ÆSKÞ meðan Jónína Sif fer í fæðingarorlof.
Jóhanna Ýr þekkir störf ÆSKÞ vel enda hefur hún verið formaður sambandsins og Landsmótsstjóri. Hún starfaði sem æskulýðsfulltrúi í Selfosskirkju árin 2015-2020 og þekkir æskulýðsstarfið inn og út.
Þeir sem vilja hafa samband við hana er bent á netfangið hennar johannayr@aeskth.is
Jóhanna hefur formlega störf 1. október.