Nammileikurinn
Gerið völl sem er ekki allt of stór. Hafið tvær fötur, eina við enda hvors vallarhelmings, fullar af karamellum. Skiptið í þrjú lið. Tvö lið eiga að reyna að stela nammi frá hvort öðru, þriðja liðið stendur á hliðarlínunni og reynir að kasta vatnsblöðrum í liðin sem eru inná. Aðeins má taka eina karamellu í einu. Það lið vinnur sem nær að tæma karamellurnar úr fötu hins liðsins. Svo er skipt þannig að öll lið fái að vera með vatnsblöðrurnar.Vatnsblöðru kast: Krakkarnir standa í hring og kasta á milli vatnsblöðru. Reyna að gæta þess að hún springi ekki.
Ein króna, fallin spýta, löggur og bófar
(þetta kunnið þið nú…ef ekki þá er það bara að hringja aftur.)