Kæru landsmótsgestir, við bjóðum ykkur velkomin á Landsmót ÆSKÞ.
Fyrir brottför þurfa leiðtogar að prenta út innritunarblað (Skrámur). Leiðtogar merkja við í rútunum hvaða þátttakendur og leiðtogar eru mættir og afhenda svo blaðið í innrinu.
Æskulýðsfélög af höfuðborgarsvæðinu, Noregi og Suðurnesjum gista í Laugarbakkaskóla. Þau fara fyrst með sínum rútum í Laugarbakkaskóla, fara inn með dótið sitt en eru fljót að því og koma svo með rútum á Hvammstanga í Félagsheimilið til þess að innrita sig. Krakkarnir bíða í rútum á meðan leiðtogar sjá um innritun en koma svo þangað inn í mat.
Æskulýðsfélög af Austurland, Norðurlandi, Ólafsvík, Vestmannaeyjum, Selfossi og Hveragerði gista á Hvammstanga. Þau fara fyrst í félagsheimilið á Hvammstanga til þess að innrita sig, krakkarnir bíða í rútum á meðan leiðtogar innrita hópinn. Eftir það fara þau með rútunum á gististaðina og labba svo í mat.
- Hofsprestakall gistir í Félagsheimilinu á Hvammstanga.
- Skálholtskirkja gistir í Félgasmiðstöðinni á Hvammstanga.
- Akureyrarkirkja, Glerárkirkja, Hólaneskirkja og Hvammstangakirkja gista í Leikskólanum á Hvammstanga.
- Austurland (nema Hofsprestakall), Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakall, Selfosskirkja, Hveragerðiskirkja og Landakirkja í Vestmannaeyjum gista í Grunnskólanum á Hvammstanga.
- Æskulýðsfélög af höfuðborgarsvæðinu, Noregi og Suðurnesjum gista í Laugarbakkaskóla.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll og óskum ykkur Guðs blessunnar og góðrar ferðar.