Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar ÆSKÞ auglýsir 50% stöðu framkvæmdastjóra frá 1. október n.k.
ÆSKÞ eru frjáls félagasamtök æskulýðsfélaga kirkjunnar. ÆSKÞ stendur fyrir fjölbreyttum æskulýðsviðburðum og eru málsvari æskulýðsstarfs innan íslensku Þjóðkirkjunnar.
Starfsstöð sambandsins er í Reykjavík. Menntunar- og hæfniskröfur eru háskólamenntun sem nýtist í starfi og víðtæk reynsla af æskulýðsstarfi. Framkvæmdastjóri er starfsmaður stjórnar ÆSKÞ.
Starfið felur í sér:
- Daglegan rekstur og umsýslu sambandsins.
- Gerð fjárhagsáætlana og öflun styrkja.
- Samskipti við aðildarfélög og samstarfsaðila.
- Málsvörn fyrir ungt fólk í kirkjunni.
Fyrirspurnum má beina til Sigurvins Lárusar Jónssonar, ritara stjórnar, á netfangið sigurvin@aeskth.is.
Umsóknarfrestur er til 7. september 2013. Umsóknir má senda merktar „Framkvæmdastjóri ÆSKÞ“ til ÆSKÞ, Neskirkju við Hagatorg, 107 Reykjavík. Með umsóknum fylgi útfyllt eyðublað um öflun upplýsinga úr sakaskrá.