kuf2012

Myndin er af kirkjuþingsfulltrúum á Kirkjuþingi unga fólksins 2012

Aðalfundur ÆSKÞ  verður haldinn í Neskirkju 8.mars kl 18.

Við hvetjum aðildarfélög til að senda sína fulltrúa og taka með virkum hætti þátt í starfi sambandsins.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Kjörgengi og atkvæðisrétt hafa allir virkir þátttakendur í starfi aðildarfélaga. Atkvæðisrétt hafa aðildarfélög, hvert aðildarfélag sem greitt hefur félagsgjöld, hefur tvö atkvæði. Virkur þátttakandi telst hver sá sem er á fjórtánda aldursári eða eldri og tekur þátt í starfi eins af aðildarfélögum ÆSKÞ. Starf ÆSKÞ er fjölbreytt og nær til breiðs aldurshóps, hvetjum við því allar sóknir og félög til að gerast aðilar að ÆSKÞ. Málfrelsi og tillögurétt hafa allir þeir sem aðalfund sækja.

Á fundinum verður boðið upp á kvöldverð.

ÆSKÞ styrkir aðildarfélög sín á landsbyggðinni, með ferðastyrk sem nemur 10.000 krónum fyrir tvo fulltrúa á hvert aðildarfélag, undanskilin eru Reykjavíkurprófastsdæmin, Kjalarnessprófastsdæmi, Suðurprófastsdæmi (utan Vestmannaeyja) og Vesturlandsprófastsdæmi. Unnt er að sækja um styrkinn með því að senda póst á aeskth@aeskth.is