Frelsum þrælabörn á Indlandi!
Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar fer fram á Akureyri helgina 15. – 17. október næstkomandi. Yfirskrift mótsins er „Frelsum þrælabörn á Indlandi“ og eins og nafnið gefur til kynna þá verður mótið með kærleiksríkasta móti, þar sem við búum til ýmis verðmæti sem hægt er að breyta í peninga til þess að frelsa þrælabörn á Indlandi. Áhugaverður pistill um þrælabörn á Indlandi
Hópastarfið verður að vanda mjög fjölbreytt og ýmsir góðir gestir munu setja svip sinn á dagskrána. Kvöldvökur verða á sínum stað, helgistundirnar líka sem og auðvitað búningaballið!
Sjáumst hress á Akureyri 15. október!!!!